Sérdeilis gáfulegt!!

Ef þú vilt sýnast gáfulegur skaltu hafa eintóma vitleysinga í kringum þig!

17.11.2008 12:03:47 / Erna

Jahá

Varla að ég þori að prófa en....

Síðasti mánuður hefur liðið ótrúlega hratt, norðurferð stendur þó klárlega upp úr þótt stutt væri.  
Eyddum helgi í miðbæ Norðurþings, með einu stuttu Gáfumannasetursskreppi, þar var hvort sem er enginn heima, vinnandi menn þar á bæ.  Heldur fannst Kamil mikið af ....ööö...hlutum... þar, enda fékk hann sýnisferð um allt hús og meira að segja í kjallarann  :haha:
Kíkti aðeins á Slútt, svona til að sjá framan í liðið og var það áhugaverður klukkutími svo ekki sé meira sagt ;)   Hitti held ég bara alla sem ég vildi hitta, nema ömmu Lillu sem var ekki heima og svo manninn sem knúsaði mig í forstofunni í Fjallalambi síðast þegar ég hitti hann :)

Skólinn minn gengur ágætlega, allavega miðað við að kennarinn er ekki mikið fyrir það að svara pósti eða skila verkefnum til baka  :evil:  ef ég held áfram eftir áramót, þá verður það EKKI í þessum skóla, það er víst.

Brynjar brillerar í sínum skóla eins og venjulega og fékk mikið hrós í vitnisburðarviðtalinu um daginn fyrir bætta hegðun, sem er auðvitað frábært:)  Hann er kominn í Skátana og búinn að fara í ferð að Laugum í Sælingsdal auk þess að sofa í tjaldi fyrir utan Skátahúsið 8)

Bergþór er "ljúfur og góður" eins og þær segja á leikskólanum og notar hvolpaaugun óspart til að vefja öllum um litla fingur sér.  Verst að það er alveg hætt að virka á mömmuna ;)   Hann vill helst sitja og lita, auk þess sem Spiderman er í algeru uppáhaldi, ég veit ekki hversu oft ég hef horft á helv...þriðju myndina :!:

Ég rak Kamil í heimsókn til Póllands og er hann búinn að vera í næstum 2 vikur í fitun hjá mömmu sinni.  Það gengur hægt, amma reyndi líka á meðan við stoppuðum þar, en ég held að ég hlaði utan á mig því sem á að fara á hann.:evil:

Fór í vinnu um daginn, í fyrsta sinn síðan í júní og var það mjög sáluhjálpandi :)  Þórdís Erla kom og passaði, þessi elska og eru börnin mín búin að panta hana framvegis.....ehhh, Þórdís...;) ;)  
Hitti Neðri-hæðar-Skipstjórann og bróður hans og var það mjög áhugavert. Honum var trommuslátturinn enn í fersku minni og sagðist bara sjá mig á næstu Sælu.  Hver veit nema systurnar taki annað sóló þá :)

Við frænkur skelltum okkur með strákana á Þjóðahátíð og var það mjög gaman og mettandi  :d   Við fórum bara hringinn og smökkuðum mat frá öllum heimshornum, misgóðan, en mér fannst maturinn frá Palestínu bestur.  Smakkaði eitthvað sem leit út eins og lasagne búið til úr fitu og pasta (leit skelfilega út!!)  en var mjög gott, líktist helst magál á bragðið, nema ekki eins salt.   Svo fengu strákarnir sér auðvitað andlitsmálningu, Bergþór var að sjálfsögðu Spiderman, en Brynjar fékk sér pólska fánann á kinnarnar.  

Stefnir í flókinn dag á morgun, starfsdagur á leikskólanum og svo þurfum við að vera komin út á Keflavíkurflugvöll um miðnætti að sækja Póllandsfarann, veit ekki alveg hvernig það á eftir að ganga að ræsa Bergþór eftir 2-3 tíma svefn til að fara í bílferð  :$  

Næstu helgi er svo starfsmannaferð hjá Norðanfiski og pantaða barnapían kemur að passa :) 
Nóg að gera, þótt maður sé ekkert að gera.....

Skál í boðinu


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.10.2008 18:28:44 / Erna

SMS

Fékk sms á ókristilegum tíma í nótt.   Þó ekki ókristilegri en það að ég var nýsofnuð. Það innihélt ekki mikið, en gladdi og yljaði í vestlenskum kulda.  Takk og high five:) 
Sextán er samt besta talan, eins og brátt kemur í ljós.  Og nei, það er ekki af því að ég vildi vera sextán;)

Knús og skál í boðinu


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.09.2008 12:41:37 / Erna

Argasta

Alveg hef ég fengið mig fullsadda af þessu blogcental!  Búin að skrifa heillanga færslu og leturgerðin umbreytist í risastafi og ekki séns að ég geti breytt því til baka :evil:  Ætla að vera sniðug, afrita hana í Word og líma svo til baka...en nei, það er ekki hægt :evil:
Hnuss, pikka þetta kannski inn aftur í dag, ef ég nenni, annars ekki :whut:
Skál í boðinu bara.

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.08.2008 14:10:31 / Erna

Taka 3!

Eins og stundum áður er blogcentral ekki vinur minn!  Eða kannski er ég bara klaufi....;)

Nú er litla barnið mitt orðið 5 ára og stóra barnið mitt komið í 5.bekk!  Ó mæ, hvað ég er að verða gömul...eða ekki 8)

Eftir pöntun, eyddi ég mánudeginum í kökubakstur og skreytingar og var útkoman þessi líka glæsilega Spiderman-kaka, sem er meira að segja búin, svo það hljóta að vera meðmæli :haha:  Það verður engin eiginleg afmælisveisla fyrr en á sunnudaginn, svo ég þarf víst að baka aðra, spurning um að taka áhættu og hafa hana öðruvísi....
Hér er afmælisbarn mánudagsins:



Get ekki stækkað hana án þess að hún fari úr fókus, veit ekki alveg hvaða grín  þetta er :evil:

Annars er flest við það sama, puttar til vandræða og ég veit ekkert hvenær ég kemst aftur að vinna. 
Seldi bílinn og held að það hafi verið mjög skynsamlegt, auðvitað.
Nikki er kominn á bílastæðið hjá mér og bíður þess að fara á verkstæðið, en þar sem ég er svo svakalega önnum kafin alltaf, þá hef ég ekki haft tíma...eða nennu... :lol:

Skál í boðinu

» 8 hafa sagt sína skoðun

26.07.2008 18:40:28 / Erna

Allt fullt af ömmulum...

Í gær átti Bróðir Tuborg afmæli og litli Leppur á afmæli í dag. 
Af því tilefni birti ég mynd af þeim skötuhjúum, sem ég rændi af síðunni hennar Lísu...sorrý Lísa 8)



Ekki reyndist unnt að stækka myndina, án þess að hún færi úr fókus, svo ef einhver vill sjá hana í fullri stærð, þá er bara að skoða hjá Lísu. ;)

Hef annars lítið að segja, laus við gips og komin með gipsspelku í staðinn.  Hana get ég tekið af og kemst því loks pokalaus í sturtuna.  Æfingar á 1-2 tíma fresti og sjúkraþjálfun 2-3svar í viku.  Nóg að gera!

Er EKKI á leiðinni norður, því að:
1.  Á ekki að keyra og get það ekki með góðu móti, treysti mér heldur ekki til þess. :$
2.  Sjúkraþjálfun 3svar í viku og NEI, ég get ekki bara sleppt henni í nokkra daga og "nuddað þetta bara sjálf" :evil:
3.  Nenni ekki að tala við fólk sem finnst ég bara vera aumingi út af nr.1 og nr.2. :s


Skál fyrir afmælisbörnunum.



» 8 hafa sagt sína skoðun

27.06.2008 12:03:58 / Erna

Ætli ég hafi smitast af.....

...."einhverjum" öðrum óheppnum eða hvað? 

Síðast fór betur en á horfðist og ég henti hækjunum út í horn eftir einn dag, fór í óvissuferðina hoppandi á öðrum fæti með hinn kolsvartan og bólginn. 
En núna?  Nei, núna er ég í gifsi og verð næstu 6 vikur.  Tróð vinstri höndinni inn í maskínu í vinnunni, í æðibunugangi a-la Erna og sit uppi með sundurskorinn lófa, tvo máttlitla fingur og einn máttlausan:$  Ótrúlegur andskoti.

Er búin að sitja í sjálfsvorkun í sólarhring og svei mér þá, ég hef ekki grenjað svona mikið síðan í september 2004 :!:  Takk fyrir það, þú sem hringdir í mig í gær og sagðir svo margt "upplífgandi" að ég féll í svörtu þunglyndis-og sjálfsvorkunnarholuna....:evil: 

Eins gott að ég á góðan kærasta sem nennir að hugga mig.  :)

Núna er sko margt töluvert erfiðara, að fara að pissa er til dæmis töluvert mál, það er sko alls ekki auðvelt að girða sig með annarri og þetta með að skammta sér klósettpappír....:^)  eigum við að ræða það eitthvað? :evil:
Að klæða sig í sokka er annað, svo ég tali nú ekki um þá lífsnauðsyn sem brjóstahaldari er :!:  Hvernig í andskotanum á að vera hægt að klæða sig í svoleiðis græju með annarri hendi?  Það er einfaldlega ekki hægt :!: 

Nú einnig má geta þess að síðan síðast er ég orðin dökkhærð eins og hinar systurnar, en líka þremur tönnum fátækari og styttist því óðum í að ég verði draumakonan, stutt, flathausa og tannlaus....:D:D

Þannig að á þessum bæ býr ekki mjög stór, dökkhærð, illa girt, tannlaus, berfætt, gifsuð kona með brjóstin flagsandi í allar áttir....allavega til þrjú á daginn, þar til kærastinn kemur til bjargar....

Skál í boðinu


P.S. Ætla ekki að láta það fylgja með hvað það tók langan tíma að pikka þennan pistil með annarri hendi....:$

» 14 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 20:22:01 / Erna

Lukku-Erna

Fyrsti maí var ekki góður dagur.  :evil:
-Kannski hefði ég ekki átt að hlakka svona mikið til Óvissuferðar Norðanfisks árið 2008?
-Kannski hefði pabbi minn bara ekkert átt að hringja í mig og segja mér að hann væri klaufi og hefði dottið á hausinn og slasað sig?
-Kannski hefði ég frekar átt að sýna samstöðu með því að fara í kröfugöngu en að fara með börnin mín út að leika?
-Kannski hefði ég ekki átt að flýta mér til Brynjars, þar sem hann lá og kveinkaði sér eftir salibunu á maganum og afturábak úr rennibrautinni?
-Kannski væri ég þá ekki með tognaðan ökkla og á hækjum í dag?:$
Ja maður spyr sig....

Skál í boðinu



» 12 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 14:12:24 / Erna

Að innan sem utan

Get nú sagt með sanni að ég þekki Kamil mun betur en hann mig.  Ég fékk nefnilega að skoða hann að innan í síðustu viku og var það nokkuð gaman, fyrir mig, það er að segja.  Ekki fannst honum það nú hvorki gott né gaman, en hann var sum sé í magaspeglun og ásamt því að horfa á herlegheitin, þá fékk ég greinargóðan fyrirlestur frá lækninum um allt sem fyrir augu bar.  Fræðandi...;) 

Fór í viðtal á leikskólanum um daginn og eins og venjulega, þá á ég ósköp ljúfan og góðan strák, sem er mjög duglegur að klifra :)  Hann kom svo syngjandi í sjónvarpinu í síðustu viku, alger stjarna í Íþróttaálfapeysunni sinni:) 

Brynjar hefur allt í einu tekið samfélagskipp og er farinn að vera úti með vinum sínum eftir skóla, móður sinni til mikillar gleði.  Kannski var hann bara að bíða eftir vorinu?

Bíð spennt eftir 3.maí, en þá erum við að fara í óvissuferð í NorðanfiskiI (já þetta i var svona viljandi), ég veit að vísu allt um hana þar sem ég er nefndinni, en hlakka bara samt til þar sem ég hef aldrei gert þetta sem við erum að fara að gera.  Síðustu 2 mánuði eða svo, hef ég verið spurð á nánast hverjum degi hver við séum að fara og hvað við séum að fara að gera, en þar sem ég er náttúrulega svo gáfuleg, þá steinþegi ég :) 

Lífið gengur annars sinn vanagang, vinna, borða, sofa.  Spennandi?  Varla, en alveg ágætt samt. 

Vodafone stendur sig mun betur í nettengingum en Hive, en ég nenni samt ekkert að blogga neitt oftar, skrítið...:$ 

Norðurferð situr enn á hakanum og enn af sömu ástæðu.  Finnst að þið eigið bara að koma í heimsókn til mín í staðinn, þar sem ég kom nú 5 sinnum norður á síðasta ári!!!  Og nei Andri, ég tel ekki með þegar menn ætla að koma í bjór-sníki-heimsóknir um miðjar nætur :lol::lol:

Skál í boðinu




» 4 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 21:59:20 / Erna

Eintómur lúxus

Í dag og gær hef ég búið við þann lúxus að hafa ótruflað internet.  Spurning hvort Hive er að reyna að gleðja mig síðustu dagana sem ég á viðskipti við þá....8|
Hef annars eytt síðasta mánuði í Norðanfiski og á Café Mörk, svona á milli þess sem ég sef.  Ákvað samt að vera löt um páskana og bara sofa, ekki vinna.  Strákarnir fóru norður og þá var sko tækifærið notað og sofið fram yfir hádegi næstum alla daga  8)
Fór út að borða fyrir tveimur vikum, í boði Norðanfisks, á Galito. Forrétturinn og eftirrétturinn voru góðir, en þar sem ég vil ekki hafa matinn minn jarmandi á diskinum, þá var ég dóni og leifði aðalréttinum :$  Frír matur og drykkir, en þar sem ég var að fara að vinna á miðnætti á Mörkinni, þá notfærði ég mér það ekkert.  Það bíður betri tíma.
Á skírdag var svo árshátíð á Mörkinni og fór dagurinn í "Amazing race" um Akranes, sund og svo voða fínan mat, með minna jarmandi kjöti. Frír matur og drykkir (aftur!) og Erna drakk bara 7-up :!:  Ja hérna, þokkalega farið að förlast á fertugsaldrinum.....  Stefnir í algert óefni ;) 
En að öðru, Rósa, er það svo 4.apríl eða?  Eins gott að vita það tímanlega, til að fara að birgja sig upp af nammi handa þér....:lol::lol:
Skál í boðinu

Og já, Skipstjórinn á neðri hæðinni, við hittumst síðar, með trommuslætti og látum :haha::haha:



» 7 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 22:12:08 / Erna

Ef þú hefur ekkert gáfulegt að segja....

...er best að þegja.  Og þess vegna hef ég lítið bloggað.  Auk þess sem hvorki internet ala Hive eða blogcentral.is hafa verið sérstakir vinir mínir á þessu ári :evil:
Heyrist ég hvaða eytt allt of mörgum tárum í að sýta það að komast ekki sem boðflenna norður á Þorrablót Öxfirðinga, allavega hafa viðmælendur mínir oft verið á betra blóti.  Auðvitað vantaði mig og þar með töluvert, en ykkur væri þá barasta nær að hringja þá kannski í mig næst og bjóða mér!!! :lol:
Er annars komin í aukavinnu, á Café Mörk, sem er eini skemmtistaðurinn á Akranesi og fyrir utan þetta eina skipti sem minn fyrrverandi sendi mig þangað á sunnudagskvöldi að kaupa fyrir sig 4bjóra til að fara með heim, þá hafði ég barasta aldrei komið þangað fyrr en ég mætti í vinnuna fyrsta kvöldið.  Erna, alltaf á djamminu á Akranesi...:(
Er búin að vinna tvö kvöld og lýst bara ágætlega á, hef ekki lent í neinum hremmingum ennþá.  Reyndar búið að spyrja mig hvort ég sé Pólverji (hvað er þetta með nefið okkar Sigþórs, af hverju halda Akurnesingar að það sé pólskt?!!!) og svona 20blindfullar gellur búnar að kynna sig fyrir mér "því ég er sko fastagestur hérna".   Sjáum til hvort ég man eitthvað eftir þeim næst....
Ef eitthvað skánar ástand í vösum, þá er stefnt á heimaslóðir um páska, en það verður að koma í ljós bara.  Liggur við fráhvarfseinkennum á Gáfumannasetrið, enda ekki komið þar við síðan ég varð thirty-something....;)
Skál í boðinu

» 8 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 16:53:16 / Erna

HÆ SIMMI!!!!

Í tilefni afmælis "aldraðrar" móður minnar kemur blogg í dag. Til hamingju með daginn mamma :) 

Annars er alger skítadagur og morgundagurinn verður ennþá verri, en þá er enn einn tannlæknatíminn og hef ég lúmskan grun um nú fái seinni tveir endajaxlarnir að fjúka. 

Af því tilefni væri ekki úr vegi að auglýsa hér með til sölu endajaxlalausa, ekki svo granna, bráðum miðaldra konu.  Henni fylgja tvö börn, einn kærasti af erlendum uppruna, feitur reikningur hjá tannlækninum og margvísleg önnur vandamál.  Öll boð verða skoðuð.

Ætli maður megi setja svona auglýsingu í Moggann? ;) 

Hef ekkert fallegt að segja (jú Ína, þú ert sæt) og áður en ég missi mig í ærumeiðingum um Michelinkvensuna (ætli hún kunni að gúgla eins og Simmi?) og væli um ranglæti heimsins, þá er eins gott að láta sig hafa það og segja bara:

Skál í boðinu

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 10:12:30 / Erna

Tannleysi og skarlatsótt

Í dag er ég heima.  Í gær var ég heima.  Í fyrradag var Brynjar einn heima.  Á morgun verð ég kannski heima. 

Brynjar er sum sé veikur og hefur sjúkdóm sem kallast skarlatsótt.  Streptókokkasýking með útbrotum.  Þeim fylgir ofsakláði með tilheyrandi skapsveiflum.  Skemmtilegt? NEI!  Nú bíð ég bara "spennt" eftir að við hin smitumst líka...:S  Vil þó taka það fram að þar sem ég er svo með eindæmum vel ættuð að þá verð ég auðvitað ekki veik. 7 9 13  :haha:  Minnist pestargemlinganna herbergisfélaga minna í Skúlagarði sem fengu allar skarlatsótt annað árið og hettusótt hitt árið...greyin...:lol:  Bergþór leitar dauðaleit að útbrotum á sér kvölds og morgna, til að fá að vera heima líka, en ekkert birtist.  Hann hefur kannski erft hraustu genin hennar mömmu sinnar? :haha:

Ég var að koma frá tannsa og er víst tveimur tönnum og 28.000kr fátækari í þetta skiptið.  Þori varla að reikna saman hversu mikið ég hef "eytt" í tannlækna á síðustu 2 mánuðum, en það er farið að slefa í sex stafa tölu :$ :cry: Á þriðjudaginn fer svo sú þriðja...  Og eftir viku fæ ég rótarfyllingu.  Það borgar sig víst ekki að forðast tannlækninn sinn í 10ár:$  Get ég ekki bara reynt að hugga mig við það að ég spara í matarkostnað í staðinn,  þar sem ég get hvort sem er ekkert borðað svona tannlaus? :haha:

Hlutirnir eru annars svona á leiðinni í fastar skorður eftir alltof mikla jólaleti, en janúar stefnir í að verða mjög áhugaverður og það ekki bara vegna tannmissis og sóttar!  Er í uppreisn á ýmsum sviðum og á eftir að koma í ljós hvað og hvort ég græði eitthvað á því....8)

Skál í boðinu:!:


» 20 hafa sagt sína skoðun

15.12.2007 18:54:18 / Erna

Bara smá fyrir Ester ;)

Helst af vígstöðvunum er að frétta að ég tel húsmóður"hæfileika" mína hafa fengið að blómstra undanfarna daga, þar sem ég hef bakað flesta daga í heila viku.  Jah, bakað eða sett krem á kökur eða málað kökur...allavega eitthvað í sambandi við kökur ;)  Er búin að baka næstum allt sem mig langar til að borða og sé fram á að þurfa að baka annan skammt af mömmukökum fyrir jól, því það finnast fleirum en mér þær góðar :lol:

Piparkökurnar og hluti af mömmukökunum voru málaðar í gærkvöldi og fór mikill meirihluti málningarinnar framan á/í yngsta fjölskyldumeðliminn.  Brynjar og Kamil voru svo líka notaðir í að setja krem á Hafrakossana og munaði minnstu að ég þyrfti að gera annan skammt af kremi, því meirihlutinn "slysaðist" alltaf í munninn á þeim.  Sem sagt allt eins og það á að vera í jólabakstri :haha:

Jólasveinarnir hafa verið örlátir það sem af er og gefið í skóinn eins og þeirra er von og vísa.  Bergþór fer alltaf að sofa á réttum tíma og sættir sig meira að segja við, að láta lesa fyrir sig stuttar bækur, til öryggis :)  Brynjar fékk að vísu ekkert í morgun, þar sem Þvörusleiki fannst hann hafa farið full seint að sofa í gær.  En hann lofar bót og betrun og skulum við vona að hann fari svona um það bil 3 klukkutímum fyrr að sofa í kvöld!!! 

Er búin að sníkja út jólarjúpurnar, svo nú mega jólin bara alveg fara að koma...næstum.  Jólakortin eru flest enn óskrifuð (þykist ætla að klára á morgun sko...) og jólagjafirnar sem eiga að fara norður og vestur eru í kjallaranum, innpakkaðar þó.  Ég ætla líka að ganga frá þeim á morgun..... :^) 

En þangað til, skál í boðinu, í perubrjóstsykri, bara fyrir Lilju ;) (Lilja, ég á svoleiðis....:haha: )

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 17:44:54 / Erna

Bubbi og nostalgían um sítrónutréð

Hef ekki lagt í blogg eftir hrakfarir mínar í viðureigninni við Skalla-Björn.  Ræði það ekki frekar, en þessa verður hefnt...einhvern tímann :haha:

En, að honum Bubba.  Sem að ég held að hafi dálítið orðið á í messunni núna.  Töluvert mikið hefur borið á blessuðum manninum þar sem hann er gefandi gítarana sína heittelskuðu til styrktar SSÁ og spilandi á vímuefnalausum samkomum, auk þess sem hann er sko alls ekki nafnlaus í AA-samtökunum.   Hvers vegna í ósköpunum er þá TUBORG annar af aðalstyrktaraðilum nýárstónleikanna hans með Stórsveit Reykjavíkur?  Er hann ekki pínulítið að skjóta sig í fótinn þar?  Ja maður spyr sig.

Sítrónutréð, Lilja, manstu?  "I wonder how, I wonder why, yesterday you told me 'bout the blue, blue sky....and all that I can see, is just yellow lemontree"   :)  Er búin að heyra þetta nokkrum sinnum í útvarpinu undanfarna daga, mér til mikillar undrunar.  Þetta vekur upp ótal minningar úr Fiskiðjunni Freyju og ég bíð bara spennt eftir að einhverjum detti í hug að spila Spaceman eða All I wanna do, að ég tali nú ekki um Sussulagið með Björk og þá er nostalgían fullkomnuð.  Ég get séð Lilju fyrir mér að syngja Spaceman, Tony í pönnuþvotti að syngja og dansa með Sheryl Crow og Fríðu Báru á háa c-inu (suss-inu) að reyna að yfirgnæfa vélargnýinn í salnum og tautið í Lillýju.  :haha:

Verst að við þessar upprifjanir mínar, áttaði ég mig á því hvað það er alveg svakalega langt síðan þetta var og hversu gömul ég hlýt þá að vera orðin.....:^) :haha:  En, iss, ég hugga mig bara við það að eiga, þrátt fyrir það, barnungan kærasta....:haha: :haha: :haha:

Jólakrísan er í pattstöðu og er mér skapi næst að stinga af til Kína um jólin, þá þarf ég ekki að taka allt of margar erfiðar ákvarðanir.  "Should I stay or should I go?"  

Skál í boðinu

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 17:59:23 / Erna

Það var lagið!

Búmmbúmmbúmm.....  Kannast einhver við lagið?  Hér var grátið í gærkvöldi af því að mamma mundi ekki hvaða lag hún hafði einu sinni sungið og var svona "búmmbúmmbúmm".....:$   Hjálp vel þegin....:haha:

Barnlausa helgin leið fljótt, enda öllum laugardeginum eytt í búðarráp í Reykjavík :S  Eyddi þó skemmtilega litlu og er það vel.  Kíktum inn í Toys'r'us og vildi hjásvæfan helst kaupa alla búðina, en ég náði honum út án þess að kaupa neitt, (það var reyndar bara út af því að honum ofbauð hversu langar biðraðirnar voru við kassana).  Er ekki viss um að það verði jafn auðvelt að fara með hina strákana þangað....:lol:

Annars gengur lífið bara sinn vanagang, vinna, borða og sofa, eða svona næstum því.  Er ekki farin að skrifa jólakort og er löngu orðin of sein með að verða fyrst til að setja upp jólaseríurnar.  Fólkið á neðri hæðinni er búið að setja jólaskrautið út í glugga og Brynjar var hjá vini sínum í fyrradag og þar var byrjað að skreyta.  Rósa, þetta er eitthvað fyrir þig! 

Stefnan er svo að bursta Skalla-Björn í Buzz á föstudag (hann er sko búinn að vera að æfa sig fyrir það í tvær vikur!) og hlakka  ég mikið til.  Loksins vill einhver leika....:haha:  Helgina þar á eftir á svo kærastinn afmæli og ég er búin að lofa því að baka 8|  Ætli hann fatti nokkuð þó ég fari bara í bakaríið og baki stóra köku þar? ;)

Skál í boðinu

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 17 nóvember
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Leitarbox

Gáfulegir Súgfirðingar
Áhugavert